Privacy policy

  1. Gildissvið
    EV Hleðsla kt. 540725-0330, Vallhólma 14, 200 Kópavogi, selur m.a. Hleðslustöðvar, hýsingu og þjónustu við rafbílahleðslunet. Fyrir sérbýli, húsfélög og fyrirtæki.

Hér á eftir fara almennir viðskiptaskilmálar EV Hleðsla, sem gilda skulu um alla viðskiptasamninga EV Hleðsla og viðskiptavina þess. Viðskiptavinir EV Hleðsla samþykkja að með gerð viðskiptasamnings við EV Hleðsla, hvort sem hann er gerður skriflega, munnlega eða með rafrænum hætti, þá gilda um hann þessir viðskiptaskilmálar. Með greiðslu fyrsta reiknings fyrir þjónustuna staðfestir viðskiptavinur viðskiptasamband sitt við EV Hleðsla og að um það gildi þessir viðskiptaskilmálar EV Hleðsla.

  1. Verð, greiðsluskilmálar, innheimta, vextir og afvirkjun viðskipta
    Verð fer eftir gildandi verðskrá EV Hleðsla hverju sinni, ef ekki er samið um annað. Verð kemur fram á reikningi EV Hleðsla til viðskiptavinar. EV Hleðsla ber að innheimta skatta og gjöld skv. gildandi löggjöf hverju sinni. Viðskiptavinur skal greiða skv. reikningi frá EV Hleðsla. Gjalddagi er 3. dagur næsta mánaðar eftir notkunarmánuð þjónustunnar.

  2. Uppsögn viðskiptasamnings og/eða riftun
    Viðskiptasamningur við EV Hleðsla er ótímabundinn. Uppsögn samnings er tilkynnt á evhledsla@evhledsla.is fyrir 15. hvers mánaðar og tekur uppsögnin þá gildi næstu mánaðarmót á eftir. Ekki er lokað fyrir aðgang ef um ræðir skemmri tíma en einn mánuð. EV Hleðsla er heimilt að afvirkja/rifta aðgangi viðskiptavinar að hleðsluneti í hýsingu hjá EV Hleðsla ef vanskil eiga sér stað að því gefnu að EV Hleðsla hafi fyrst upplýst viðskiptavininn skriflega um það.

  3. EV lyklar, umsókn og útgáfa
    EV Hleðsla gefur út EV lykla og rekur EV Hleðsla appið m.a. vegna viðskiptasamninga um hýsingu og þjónustu í hleðslunetum viðskiptavina. Skilmálar þessir gilda fyrir EV lykla og EV Hleðsla appið, sem tengd eru með greiðslukorti. Greitt er fyrir notkun á hleðslum í neti EV Hleðsla ýmist með EV Hleðsla lyklinum og/eða í EV Hleðsla appinu. Úttektir eru gerðar með EV lykli og þær innheimtar með færslu um kortareikning viðkomandi EV lykils. Innheimta kortafærslu fer eftir skilmálum viðkomandi kortafyrirtækis. Skilmálar þessir eru samþykktir við skráningu í viðskipti við EV Hleðsla og er samþykki staðfest við fyrstu notkun/greiðslu á EV lykli.

EV lykill er eign EV Hleðsla en meðferð og notkun hans er alfarið á ábyrgð skráðs handhafa EV lykilsins. Handhafa lykils ber að kynna sér viðskiptaskilmála þessa. Glatist EV lykill skal handhafi þegar í stað afvirkja lykilinn greiðslukorti sínu í EV Hleðsla appinu. Jafnframt er unnt að tilkynna það í símanúmer EV Hleðsla sbr. vefsíðu evhledsla.is. Handhafi EV lykils ber fulla ábyrgð á úttektum með glötuðum lykli þar til lykill hefur verið aftengdur.

EV Hleðsla áskilur sér rétt til að loka og/eða afvirkja EV lykil fyrirvaralaust ef um misnotkun eða vanskil er að ræða. Skráður handhafi EV lykils skuldbindur sig til að greiða að fullu úttektir sem framkvæmdar eru með EV lykli og í samræmi við gildandi verðskrá EV Hleðsla eða viðskiptavina EV Hleðsla fyrir hleðslur á hverjum tíma.

Sótt er um EV lykla á vefsíðu evhledsla.is. EV Hleðsla appið er sótt í gegnum snjallsíma í Google Play og IOS Appstore.

  1. Breytingar á viðskiptaskilmálum
    EV Hleðsla áskilur sér einhliða rétt til að breyta viðskiptaskilmálum þessum. Breytingar á viðskiptaskilmálum taka gildi frá birtingu þeirra á heimasíðu EV Hleðsla.

  2. Framsal
    Réttindi og skyldur samkvæmt viðskiptaskilmálum þessum getur viðskiptavinur ekki framselt, flutt eða falið öðrum án samþykkis EV Hleðsla og sérhvert meint framsal eða flutningur án slíks samþykkis er ógilt með öllu. EV Hleðsla skal ekki með ósanngjörnum hætti synja um slíkt samþykki eða draga að taka afstöðu til beiðnar um slíkt samþykki. EV Hleðsla er heimilt að framselja réttindi og skyldur skv. samningi þessum til félags innan sömu samstæðu.

  3. Lausn ágreiningsmála
    Komi upp ágreiningur út af viðskiptaskilmálum þessum skulu aðilar leitast við að leysa hann í sátt. Rísi mál út af þeim skal reka það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

  4. Persónuvernd
    Til að uppfylla skyldur sínar skv. skilmálum þessum og lögum samkvæmt vinnur EV Hleðsla með tilteknar persónuupplýsingar um viðskiptavini. Um vinnslu persónuupplýsinga fer samkvæmt persónuverndarstefnu EV Hleðsla sem aðgengileg Hér að neðan 

  5. Gildistaka
    Viðskiptaskilmálar þessir taka gildi frá og með 18. desember 2025.

 

Persónuverndarstefna

Öll meðferð EV Hleðsla á persónuupplýsingum lýtur lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglum sem settar eru samkvæmt þeim. Jafnframt sér EV Hleðsla til þess að öll vinnsla persónuupplýsinga innan fyrirtækisins sé í samræmi við framangreind lög og framfylgir því að vinnsluaðilar sem fá aðgang að persónuupplýsingum fylgi þeim einnig.

EV Hleðsla sér til þess að einstaklingar í viðskiptum við EV Hleðsla séu upplýstir um þá vinnslu persónuupplýsinga sem á sér stað á vegum fyrirtækisins og í hvaða tilgangi hún er unnin. EV Hleðsla tryggir að vinnsla fari ekki fram í öðrum tilgangi en upplýst hefur verið um nema með fullri vitneskju viðkomandi og fullnægjandi heimild um þá vinnslu samkvæmt persónuverndarlögum.

Einstaklingar geta óskað upplýsinga um þá vinnslu sem á sér stað hjá EV Hleðsla og varðar þá sjálfa. Þeir geta andmælt vinnslunni telji þeir að hún sé ekki í samræmi við gildandi lög og reglur og ef þeir óska þess krafist þess að rangar, villandi eða ófullkomnar persónuupplýsingar verði leiðréttar eða þeim eytt.